Zola´s Zone

Welcome to the Zone!

30.10.2009 12:34:20 / solrun

Erfitt vetrarfrí hjá sumum

Korter í hádegismat og alveg kominn tími fyrir nokkur orð hér á þessum vettvangi!

Núbb...Björg Steinunn er búin að vera í vetrarfríi í skólanum þannig að hún hefur fylgt mér eins og skugginn. Ég vakti hana klukkan sjö á miðvikudagsmorgun til þess að fara með mér í sund (ég syndi alltaf 2000 metra skrið á miðvikudögum) og hún var alveg ótrúlega hress og hafði dreymt svo vel. Eftir notalega stund í lauginni þar sem ein kona hafði spurt mig hvort við værum í skólasundi (var ekki búin að sjá belginn á mér og hélt ég væri 11 ára um stund...ókey það var dimmt og ég var með sundhettu og sundgleraugu og það sást því ekki vel að ég er krumpaðri en rúsínan í pylsuendanum) fórum við í bakarí og keyptum eitthvað semi-óhollt til að smjatta á. Svo fórum við með Gunna pabba hennar til kennarans í foreldraviðtal þar sem allt var í gúdí, þó að hún sé víst frekar fyrir það að rumpa verkefnum af svo hún komist sem fyrst í sín eigin gæluverkefni, sem er að skrifa dagbók og búa til teiknimyndasögur. Vel skiljanlegt. Svo ætlaði Björg í starfskynningu hjá pabba sínum á Radisson SAS en ekki vildi betur til en að hún klemmdi sig illa á bílhurðinni hans og þurfti að fara upp á slysó í myndatöku. Sem betur fer brotnaði hún ekki en var illa marin og blóðug. Fyrir nokkrum árum var hún líka í vetrarfríi og klemmdi sig þá á tveimur puttum hér uppi í Borgó og þurfti líka að fara á slysó. Vetrarfrí á greinilega ekki vel við puttana á Bröggsí minni.

Það er búinn að vera einhver gífurlegur fítonskraftur í mér þessa dagana. Ég er búin að spæna í mig allar tímaritgerðirnar og gefa einkunnir á hægri og vinstri. Ég náttúrulega læt eins og hver dagur sé minn síðasti þar sem að nú eru bara tæpar fjórar vikur í fæðingu og jafnvel tæpar þrjár ef þetta verður eins og síðast. Svo er auðvitað möguleiki á að ég fái að tjilla alveg fram í desember. Ég held samt ekki...

Það virðist vera að ganga einhver míni-svínaflensa hérna í kringum mig. Hún lýsir sér í því að maður er ekki með hita en samt hnerrandi, illt í hálsinum, hálf stíflaður, með hausverk og beinverki og virkilega farinn að halda að maður verði rúmliggjandi næsta dag. Svo er bara ástandið alveg eins daginn eftir, hvorki verra né betra. Ásta er búin að vera með þetta í viku og Steini hennar búinn að finna fyrir þessu líka, Hjörtur byrjaði á þessu fyrir nokkrum dögum og ég í fyrrakvöld, auk nokkurra vaskra kennara hér í skólanum. En það er ágætt að þetta nær ekki lengra, þó það sé ekkert spes að vera ekki alveg 100% þegar nóg er að gera.

Helgin framundan með öllu sínu djammi og svínaríi. Ég ætla út úr húsi annað kvöld, aldrei þessu vant, enda stórvinkona mín hún Guðrún Guðjóns orðin fertug og ætlar að bjóða í smá teiti. Ég á svo sem ekki von á því að staldra mjög lengi við en þetta verður samt pottþétt gaman. Erna mágkona verður þrítug 16. nóvember en ætlar ekki að halda upp á afmælið fyrr en 27. nóvember sem ég tel að sé algjört samsæri gegn mér, enda verð ég að öllum líkindum í gífurlegum rembing einmitt þá.

Nú eru sjö mínútur í hádegismat þannig að ég kveð að sinni.

Hasta la vista!

Sóla bóla:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.10.2009 12:49:33 / solrun

Þróunarkenning Sólwins

Jólrún jötunuxi hér! Ég var að koma úr göngutúr upp í Mjódd þar sem ég skildi litlu stelpurnar eftir á Skellibjöllu 2 og rölti mér svo til baka til þess að fá frið til þess að blogga...og jú, kannski vinna smá líka. Annars var planið að kíkja á seinni hálfleikinn hjá Liverpool og erkifjendunum á eftir heima hjá pabba. Nú er bara að vona að Púlararnir finni sig í leiknum...

Helgin góð eins og alltaf. Ég varð eitthvað hálf asnaleg eftir svínaflenusprautuna upp úr hádegi á föstudag, með beinverki og hausverk en þetta lagaðist svo bara þegar leið á daginn þannig að ég er bara í góðum málum. Um kvöldið fylltist húsið af stelpugrislingum sem voru að gista hjá Björgu Steinunni. Þær gerðu sér lítið fyrir og sváfu allar fjórar í sama rúminu. Hér eru þær reyndar að horfa á einhverja bíómynd og hafa það huggulegt:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber121.jpg
Inga, Björg, Marta og Guðrún K, bekkjarsystur Bjargar.

Við gerðum svo sem ekkert sérstakt á laugardaginn nema að fara með Sigrúnu í dansinn og á meðan svitnaði ég eitthvað í Laugum. Eftir það fórum við mæðgurnar í sund í Laugardalslauginni og hefðum eflaust verið þar til eilífðarnóns ef pleisinu hefði ekki verið lokað klukkutíma síðar út af lokadegi sundmóts fatlaðra. Ég var annars að spá í hvort ég færi ekki að verða gjaldgeng þar með mína gölluðu hásin?

Hjörtur stjörnukokkur (star cock) var í miklu stuði í eldhúsinu og eldaði gæs (sem átti að gifta sig næsta laugardag) með miklum stælum og svo var líka gamla svínið í mat....sko pabbi....múhahahahaha...jæja...ég er svo fyndin með rassinn út í vindinn! Hérna er maturinn:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber132.jpg
Ekki spyrja mig hvað þetta heitir allt saman en helvíti bragðaðist þetta vel hjá kallinum!

Ég steingleymdi að láta taka bumbumynd af mér í gær og gjöreyðilagði því ryþmann í ljósmyndagjörningi Hjartar. Ég lét hann þó smella af mér mynd í dag í staðinn þannig að ég er komin 35 vikur og fjóra daga á henni. Ég setti saman smá mynd sem minnir um margt á þróunarkenningu Darwins:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/10Oktober.jpg
Fyrsta myndin er þá tekin við 29 vikur og 3 daga, önnur myndin 32 vikur og 3 daga og svo þriðja 35 vikur og 4 daga.  Þetta stækkar!!

Næsta mynd verður þá tekin eftir 3 vikur, ef ég verð ekki bara búin að eiga þá.  Enn er séns að veðja á dag og kyn!

Lúlla systir var ekki búin að sjá mig lengi, en hún kíkti loks í smá "kaffisopa" hjá mér á föstudaginn. Það komu vöflur á hana (belgískar eða franskar?) þegar hún sá bumbuna og var hún alls ekki jafn sannfærð um að þetta væri strákur lengur. Hún ætlar samt að halda sig við að það komi drengur á afmælisdegi hennar, 11. nóvember. Hjörtur viðurkenndi líka fyrir mér í gær að ég væri eiginlega búin að koma inn svolitlum vafa hjá honum líka en samt sem áður ætlar hann að halda sig við að þetta verði myndarlegt sveinbarn sem fæðist 1. desember.

Stelpa segi ég, samt aldrei fullkomlega sannfærð (af því að ég er svo léleg í að giska á svona). Það er samt komið fullt af pínulitlum fötum í skiptiborðskommóðuna núna með frekar bleiku ívafi. Engu að síður er nú slatti þarna í hvítu og öðrum hlutlausum litum en ef þetta skyldi verða strákur þykist ég viss um að einhverjar strákamæður þarna úti hlaupi til og láni mér eitthvað blátt og örsmátt svo barnið verði kátt og hafi ekki hátt fram á miðja nátt. Annars held ég að strákar hafi bara gott af því að ganga í bleiku. Ef þetta verður drengur verður hann eflaust ótrúlega metró með allt þetta systrastóð yfir sér. Spennó pælingar!

Wello wello...pabbi plóma býður í kjötsúpu í kvöld og þar verður gaman að hitta líka Bjössa bró og Ernu hró sem verða þá nýkomin frá Stykkishólmi með fullt af fréttum af Begga bjúti, Daða hrrænda og fleiri flottum Hólmurum.

Gleðilega sunnudagsrest!

Jólrún jötunuxi:haha:

» 7 hafa sagt sína skoðun

22.10.2009 22:16:53 / solrun

Svínaflensusprauta og hreiðurgerð

Ég var búin að velta því mikið fyrir mér hvort að ég ætti að fara í þessa blessuðu svínaflensusprautu eður ei. Hefði ég ekki verið ólétt myndi ég aldrei láta mér detta það í hug að fara í flensusprautu. Komi það sem koma vill...og allt það.  En fólk hefur verið að benda mér á að það sé kannski ekkert sniðugt að vera með svínaflensuna í miðri fæðingu eða jafnvel í upphafi brjóstagjafar (sem var nú nógu mikið vesen síðast), auk þess sem landlæknir og allt heilbrigðisstarfsfólk, þar á meðal ljósmóðirin mín, mæla eindregið með því að óléttar konur fái þetta bóluefni.

Ég mætti því í mína mæðraskoðun í dag og ætlaði svo að panta tíma í bólusetningu í heilsugæslustöðinni svona í leiðinni. Haldiði að ljósmóðirin hafi þá ekki átt einn afgangsskammt frá heilsugæslustöðinni sem hún vildi endilega setja í mig bara strax? Þetta er víst blandað að morgni og endist bara í einn sólarhring og þar sem ég var síðasti kúnninn, að því er virtist, fékk ég þetta bara "beint í æð". Ég fann bara alls ekki fyrir stungunni, ótrúlegt en satt, en núna í kvöld er mér farið að líða eins og ég sé með harðsperrur í upphandleggnum. Lúlla systir fékk svona sprautu í gær og er veik í dag, sem er víst ekki óalgengt, en ég vona nú að ég haldi áfram að vera eiturhress á morgun því ég má ekki missa einn einasta tíma úr kennslunni áður en ég hverf frá störfum.

Planið er sem sagt að hætta að vinna 26. nóvember, einmitt daginn sem ég er sett. Ég skipulagði kennsluna þannig að einfaldlega væri farið hraðar yfir efnið og þannig gæti ég klárað örlítið fyrr. Þess vegna þætti mér afskaplega vænt um að barnið væri ekkert að koma of mikið fyrir tímann. Þó að ég geri mér reyndar fullkomlega grein fyrir því að það er fullt af ómissandi fólki í kirkjugarðinum.

Ég er alltaf að hallast meira og meira að því að þetta sé stelpa. Ég hef svo sem engin gífurleg rök að baki þeirri ályktun, nema þau helst að bumban er eins (heldur stærri reyndar), hjartslátturinn barnsins er hraður og svo hafa ýmis áreiðanleg próf verið tekin, s.s. pendúlsprófið og nálarprófið, sem benda ótvírætt til þess að ég beri myndarlegt meybarn undir belti. Ég var reyndar alveg sannfærð um að Björg Steinunn væri strákur (alveg þangað til við hittumst í fyrsta sinn), enda voru miðlar búnir að segja mér frá kyninu í óspurðum fréttum og gamlar konur sáu sveinbarn í draumum sínum. Ég þorði því ekkert að giska á hvort kynið næsta barn var, en nú hef ég hlotið hugrekkið á ný. Ef ég hef rangt fyrir mér þá er það bara fínt. Það þýðir nefnilega að Hjörtur hefur rétt fyrir sér og það gerist nú ekki oft í okkar sambandi. Múahahahhahahaaaaaa......

Mig langar svolítið til þess að fæða í heitum potti og spurði einmitt ljósmóðurina um það aftur í dag hvort að það væri ekki auðvelt í framkvæmd þarna uppi á Landspítala. Hún sagði að það yrði í góðu lagi, svo fremi að einhver pottur væri laus. Þannig að ég verð bara að trúa og treysta á heppnina. Með heppnasta mann landsins mér við hlið get ég nú ekki annað en trúað því að fæðingin verði hin huggulegasta, með kertaljós á kantinum og freyðivín í glasi....eða þannig. Ég hugsa reyndar meira um brjóstagjöfina heldur en sjálfa fæðinguna núna enda var ég á nippinu síðast með að gefast upp EN það hafðist og Diddú dúlla sleppti ekki júllunum fyrr en hún var að verða tveggja ára. Ég stend mig alla vega betur í að safna fituforða núna heldur en síðast og ætla einmitt að láta Hjörtinn smella einni mynd af mér á laugardagsmorgun, en þá verð ég komin 35 vikur og tvo daga, að mér skilst. Allt að gerast og bara mánuður í þetta!!

Önnin er búin að vera fljót að líða. Ég er búin að vera fáránlega heppin með nemendur. Þeir eru upp til hópa skemmtilegir og vinnusamir og agavandamál eru nákvæmlega engin. Who could ask for more?? Ég fæ síðasta ritgerðarskammtinn á þriðjudag og fimmtudag (70 stykki ef allir skila) og þegar ég er búin að vinna mig út úr þeim verkefnum er heimavinnan að mestu leyti búin. Hjörtur er byrjaður að setja saman skápana í herberginu hennar Sigrúnar Bjarkar sem þýðir að bráðum get ég farið að tæma skiptiborðið og setja örlítið minni föt í það í staðinn. Hreiðurgerðin fer sem sagt að hefjast alveg rétt bráðum.

Þetta blogg er orðið svínslega langt fyrir meðalmanninn og lesblindir með athyglisbrest eru hugsanlega löngu farnir eitthvað annað. Við hina segi ég: Góðar stundir og megi svínaflensan fara fram hjá húsi yðar.

Sóla svínka:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2009 22:13:57 / solrun

Sigrún Björk 4ra ára

Þá er mikil veisluhelgi að baki og ég þori ekki fyrir mitt litla líf (sem er í bumbunni?) að stíga á vigtina næstu daga. Ekki eins og ég eigi svo sem von á því að léttast næstu vikurnar hvort eð er...

Sigrún Björk varð sem sagt fjögurra ára laugardaginn 17. október en á föstudeginum hélt leikskólinn upp á afmælið hennar með pompi og pragt. Hér ber hún stolt kórónuna sem kennararnir á Trölladeild í Grænatúni föndruðu fyrir hana:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber070.jpg
Næstum því fjögurra ára!! Nú er hún elst á deildinni en var yngst í fyrra.

Ég stóð auðvitað í ströngu í veisluundirbúningnum og var til hálf tvö aðfaranótt laugardags að baka og skreyta. Dórukakan sem Sigrún hafði pantað var búin að valda mér talsverðu hugarangri þar til ég datt inn á mjög skynsamlega lausn. Það er erfitt að teikna flottar fígúrur með kökukremi svo vel sé en það er miklu minna mál að búa til einfalt landslag og skreyta með plastfígúrum. Sigrún átti slatta af Dóru dóti sem ég nýtti í þessa tiltölulega einföldu uppsetningu:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber073.jpg
Þarna má sjá Dóru svamla í sjónum, Luigi renna sér ofan í sykurpúðalaug og Blossa uppi í pálmatré í eyjunni við hliðina (gerð úr grænum kókos), sem tengd er við hina eyjuna með bleikri brú. Kakan við hliðina er svo týpísk Dórustjarna, en húsmóðirin Sólrún var svo heppin að eiga einmitt stjörnukökumót (sem sæmir stjörnuhúsmóður).  Það var þreytt en fegin lufsa sem dröslaðist upp í rúm þá nóttina!

Daginn eftir kom Sigrún upp í rúm til okkar rétt fyrir níu og var búin að steingleyma því að stóri dagurinn var í dag. Svo sótti ég heila fjóra pakka sem hún fékk að opna í rúminu og þá hýrnaði heldur betur yfir henni. Hún fékk eitthvað af fötum frá okkur, flottan kjól frá Akureyrargenginu og ALLA haustfatalínuna úr H&M frá Noregsgenginu og líka NAMMI sem hún hafði nú mestan áhuga á þá stundina. Svo fékk hún líka þetta fína kisuhljómborð sem við höfðum keypt á spottprís í USA, þannig að Sigrún fór ansi spennt og glöð inn í daginn. Henni var svo bara plantað fyrir framan barnaefnið í sjónvarpinu þangað til Helga stóra systir kom og fór með hana í danstíma í Laugum og svo út í búð að velja afmælisgjöf.

Á meðan bisuðu foreldrarnir við að koma veisluföngum á borðið og þegar því var að ljúka (vantaði bara heitu réttina) smellti feita konan mynd af "borðinu" - eins og þykir viðeigandi á bestu bæjum:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber082.jpg
Það versta var að ég var aðeins of stórtæk í framleiðslunni og var með annan eins skammt úti á svölum sem bera átti inn þegar hitt kláraðist.  Þó að ég sendi fólk heim með afganga og Hörpu aftur í vinnuna á sambýlinu með heila tertu var samt ansi mikið eftir og er enn.

Gestir voru góðir að vanda og hér má til dæmis sjá mæðgurnar Ernu Rós og Ernu Guðríði. Það er nú einhver Svefneyjasvipur á henni Ernu Rós, enda minnir hún mig á Björgu, mig, Lúllu, Bjössa...og reyndar líka á bróður sinn. Algjört krútt og þær mæðgur báðar reyndar.
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber090.jpg


Ásta mætti svo með grísina sína sem stóðu alveg undir nafni því að tveir þeirra voru búnir að vera með svínaflensuna í heila viku og ekki alveg búnir að jafna sig enn. Ásta virkar langfrísklegust á þessari mynd enda alltaf í stuði:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber092.jpg
Þreytuleg krútt og glæsileg móðir!

Sigrún Björk fékk fullt af fallegum gjöfum og vil ég bara þakka öllum sem mættu á staðinn kærlega fyrir stelpurófuna.

Daginn eftir var svo aftur farið af stað í veisluundirbúning og allt kapp lagt á að gera afgangana sem girnilegasta (úr nógu var að velja svo sem). Ég notaði sem sagt tækifærið og bauð mömmuklúbbnum í smá veislu og það var sko ekki leiðinlegt að fá þessar myndarkonur í heimsókn. Þrjár okkar eru óléttar og það á svipuðum tíma þannig að mömmuklúbburinn mun örugglega halda áfram að lifa. Þessi kostulega geiflu- og sveiflumynd var tekin af bumbulínunum glæsilegu:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber098.jpg
Íris þurfti að fetta sig mest því að hún er sett 5. janúar, Hulda Birna fetti sig næstmest því hún er sett 28. nóvember en ég misskildi eitthvað þegar sagt var "fetta" og hélt að einhver hefði sagt "gretta" en það er í lagi því að mín bumba er svo stór (-glæsileg) að ég þurfti eiginlega ekkert að fetta mig (bara gretta mig). Ég segi að Íris gangi með strák (af því að Eva franska segir að hún sé með stelpu og hún hefur alltaf rangt fyrir sér), Hulda Birna líka með strák (af því að það sást í sónar, ha ha) og ég með stelpu...af því að Eva franska sagði að ég gengi með strák og...hún hefur alltaf rangt fyrir sér. Þar til annað kemur í ljós.

Hér er svo mynd af nokkrum krökkum úr mömmó:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber104.jpg
Elísabet Berglindardóttir, Sigrún Sóludóttir, Aðalsteinn Ástuson, Benedikt Ástuson og Messíana Maríudóttir.

Eftir þessa veislu númer tvö var ekkert annað að gera en að taka til og ganga frá afgöngum. Sigrún háttaði svo snemma eftir viðburðaríka helgi en tók samt smá túr á hlaupahjólinu sem Óli afi gaf henni:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/Oktber117.jpg

Næsta stórveisla verður haldin eftir um það bil ár því af praktískum ástæðum verður afmæli Sigrúnar Bjarkar og afmæli ófædda krílisins slegið saman í eitt. Ég hef skilað mínu hlutverki í ár og er strax byrjuð að safna kröftum fyrir næsta ár.

Húsmóðurkveðja (sem þýðir BLESS húsmóðir!)

Sóla átvagl:haha:

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.10.2009 10:59:22 / solrun

Sykur, járn og pisserí

Fór í mæðraskoðun í gær og skoðaði nokkrar mæður og komst á þá skoðun að það mæðir mikið á mæðrum...bleh...

Ljósmóðirin mín var veik þannig að ég fékk þá gömlu góðu aftur sem ég einhvern veginn fíla miklu betur. Það er þetta "extra touch" sem fólk hefur sem fær mann til þess að hugsa að þessi er ekki bara að mæta í vinnuna frá 9-5 til þess að fá sinn tvö hundruð þúsund kall (brúttó) um hver mánaðarmót. Anyways, ég pissaði á strimil eins og vanalega en eitthvað var litaflóran undarleg því að ljósmóðirin fékk nett sjokk og sagði að sykurinn í þvaginu væri í hámarki!! Ég benti henni á að droparnir sem ég gat kreist út hefðu verið í lágmarki og svo var ég nýbúin að borða banana sem kannski hafði einhver áhrif á niðurstöðuna. Hún lét mig fá tvo strimla með heim til þess að buna á sem ég gerði svo í gærkvöld og í morgun og þá var allt í fínasta lagi (hjúkkit).  Hins vegar kom svo í ljós að ég var allt of lág í járni og þarf því að fara að gleypa járntöflur með tilheyrandi hægðatregðu og brjóstsviða.  Svo vill hún hitta mig aftur eftir viku til þess að tékka á öllu saman á ný.

Ég hef hins vegar ekki fundið fyrir neinum óþægindum og er eldhress að vanda. Ég sef kannski ekki í 7 tíma straight því að ég hef bara um tvær svefnstellingar að velja (fóstur, hægri eða vinstri?) og þarf að tappa af blöðrunni a.m.k. tvisvar á nóttu. Samt sef ég bara vel, er eldhress á daginn og hef ekki einu sinni fundið fyrir togi yfir lífbeininu ennþá þannig að hlutirnir gætu ekki verið betri. Fyrir mér er fyrsti þriðjungur meðgöngunnar verstur, með allri sinni ógleði og þreytu. Síðustu þrír mánuðurnir eru kökubiti miðað við þau óþægindi. Hmm...reyndar er verkurinn í hásininni alltaf að aukast og ég er hölt fyrsta hálftímann eftir að ég vakna. Mikið væri nú frábært ef í ljós kæmi að verkurinn stafaði af járnskorti!!

Busy helgi framundan. Sigrún Björk verður fjögurra ára á morgun þannig að ég stóð í bakstri í gær og mun standa við í kvöld og aftur á morgun (með dyggri aðstoð Hjartar eldhúsyfirmanns). Ég mun baka extra mikið því að hópur mæðra og afleggjara mætir svo í afgangana á sunnudaginn, í hinn heimsfræga mömmuklúbb Borgarholtsskóla. Ég komst að því í gær að marengs getur verið streituvaldur og ég á svo eflaust eftir að fá nokkra svitadropa á ennið í kvöld þegar ég þarf að skreyta þessa blessuðu barnaköku. Björg Steinunn yfirskreytingameistari verður fjarri góðu gamni þar sem hún er að fara í æfingabúðir með Skólahljómsveitinni eitthvað út á land, í staðinn fyrir Landsmótið í Vestmannaeyjum sem féll niður vegna veðurs um síðustu helgi.

Jább. Litla dúllan hennar mömmu sinnar að verða fjögurra ára. Yndisleg stelpa, blíð og góð, þó að hún sé nú alveg fyrir að ráðskast svolítið með aðra. Ég spái því að báðar dætur mínar verði kennarar og hver veit nema að framtíðarkennarinn bíði líka í bumbunni? Framtíð þeirra er björt!

Sóla sugarbabe

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.10.2009 22:29:44 / solrun

Konan í eldhúsinu og gamlar myndir

Nú er svokallað miðannarfrí í Borgó, þ.e. frí á föstudag og mánudag og þar af leiðandi löng helgi. Aldrei þessu vant er ég að græða nánast ekki neitt á þessu fríi því að stundataflan mín var svo skrítin að ég kenni bara tvo tíma á mánudögum og tvo tíma á föstudögum en svo eru þriðjudagar, miðvikudagar og fimmtudagar alveg þrusuþéttir. Ég ætlaði samt að vera dugleg og byrja föstudaginn á sundspretti áður en ég settist við vinnu hérna heima en þegar ég sá hvernig veðrið var um morguninn hélt ég mig bara heima allan daginn. Einhvern tímann hefði maður nú alveg látið sig hafa það en það verður að viðurkennast að ég er óvenju löt þessa önnina, sérstaklega eftir að ég hætti að hlaupa. Hásinin hefur ekki verið til friðs undanfarið og það fer svolítið á sálina á mér, sérstaklega af því að ég er nánast ekki að gera "dick shit" - nema að synda, hlaupa og krosstreinast smá kannski 3-4 sinnum í viku max.

En gengið get ég já já já og tók alveg þrjá og hálfan tíma með dætrunum og Dísu Bjargarvinkonu í dag út um víðan völl. Sigrún Björk er að fara sína síðustu túra í barnavagninum enda nýtt kríli bráðum að taka við hásætinu. Við örkuðum fyrst sem leið lá út í Nauthólsvík en á leiðinni fann ég hreyfingarlausa manneskja á grúfu, liggjandi við vegkantinn. Ég stoppaði með barnavagninn, ræskti mig og sagði: "Halló. Er ekki allt í lagi?" Þá fékk manneskjan skyndilega meðvitund, reisti sig við og brosti út að eyrum: "Jú jú. Ég er bara að gera rannsókn á því hvort að fólk bregðist við og reyni að hjálpa. Foreldrar mínir eru þarna í felum að taka fólk upp á vídeó." Og viti menn. Mamman og pabbinn vinkuðu ákaft, lengst úti í móa. Gaman að þessu.

Eftir Nauthólsvík fórum við í Perluna og urðum aftur vitni að undarlegu háttalagi íslenskra unglingsstelpna. Fimm stelpur stóðu úti á svölum og voru að taka alls kyns flippaðar hópmyndir, svo sem með því að setja vélina á timer, girða niður um sig og standa á höndum.  Mér og stelpunum mínum fannst þetta alveg jafn fyndið og stelpunum í múninu. Íslensk æska lætur svo sannarlega engan bilbug á sér finna. Eimen.

Ég sjálf er búin að finna konuna í mér á nýjan leik. Hjörtur er búinn að vera fjarverandi í huganum síðustu daga og kom ekki aftur inn í fjölskylduna fyrr en núna rétt eftir kvöldmat, þegar hann kláraði loksins The Girl Who Kicked the Hornet's Nest eftir Stieg Larsson, sem hann segir vera þá mest spennandi í trílogíunni. Ég hef því þurft að elda matinn heila þrjá daga í röð og gott ef röddin hefur ekki mýkst og hárvöxturinn í andlitinu minnkað eftir að ég tók við þessum kvenlegu húsmóðurstörfum á ný. Hjörtur fær þó sprotann (sleifina) á ný eftir helgi.  Gott að vera búin að fá kallinn til baka og alla leið inn í eldhús þar sem hann á heima.

Ég var að skanna einhverjar gamlar myndir inn fyrir pabba fyrir stuttu og setti inn nokkrar aðrar í leiðinni. Höfum því smá myndasýningu í lokin.
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/3.jpg
Hér eru pabbi og Björgvin stóri bróðir, væntanlega fyrir framan Bræðraminni í Flatey. Sem minnir mig á það að ég ætla að kaupa nýja diskinn með Lay Low sem er tekinn upp í Flatey og heitir einmitt...FLATEY!

http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/8.jpg
Þarna stendur pabbi í miðjunni með kettling í fanginu og ég þykist viss um að Hjördís systir hans standi honum á vinstri hönd (af því að Ella dóttir hennar lítur nákvæmlega eins út) og þá hlýtur þetta bara að vera Pálína systir hans til hægri, þó að ekki sé hún neitt sérlega lík sjálfri sér á þessari mynd. Mér sýnist að gamla skólahúsið í Flatey sé þarna í baksýn.

Svo er ágætt að fara aðeins meira inn í nútímann. Pabbi gaf mér þessa mynd af mér, mömmu og Lúllu:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/egmalu.jpg
Ég giska á að ég sé þriggja ára þarna og þá ætti Lúlla að vera sex ára. Lúlla er eina sem kann að brosa! Sér einhver svip þarna með mér og dætrum mínum?

Svo skannaði ég inn albúm af Björg minni með myndum sem voru líklega teknar í október-nóvember '99 þegar hún var ca. 14 mánaða. Hér eru tvær af litlu snúllunni:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/bjorg1-1.jpg
Hún var svo ægilega lítil og nett og verður það líklega alltaf.

http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/bjorg11.jpg
Fleiri myndir úr albúminu má svo sjá inni á facebook, þar á meðal einhverjar prakkaramyndir sem eru svona meira dæmigerðar fyrir Björgu.

Núna tel ég að tími sé kominn til þess að glugga aðeins í bók fyrir svefninn.

Góðar stundir

Zola Larsson:haha:

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.10.2009 22:42:12 / solrun

Fæðingardagsveðmálið mikla!

Það var góð þátttaka í fæðingarveðmálinu og enn er nægur tími til stefnu. Ég er sem sagt sett 26. nóvember og veit ekki kynið þannig að þeir sem eiga eftir að skjóta, endilega verið með. 22. og 27. nóvember virðast vera heitustu dagarnir. Endilega setjið inn tíma ef fleiri en einn eru með sama dag og kyn - annars vinnur sá sem setti inn tíma, sama hvort það kemur á þeim tíma eður ei. Kynjastaðan er nokkuð jöfn: 15 giskuðu á strák og 14 á stelpu. Svona lítur þetta út núna:

11.11.  Strákur fyrri hluta dags (Lúlla).

14.11.  Drengur aðfaranótt 14. (Jóhanna Eiríks).

15.11.  Strákur eftir seinna kaffi (Eva glenna).

16.11.  Strákur (Matthildur).  Stelpa (Gugga).

19.11.  Strákur (Gunni horski).  Stelpa (Erna).

20.11.  Stelpa kl. 14:00 (Olga Dís).

22.11  Stelpa (Svala, vantar tíma).  Stelpa kl.  09:11:22 (Tinna).  Stelpa (Arna Sædal, vantar tíma).  Strákur kl. 13:17 (Sara Diljá).  Strákur einhvern tímann eftir kvöldmat (Sabbaló).

23.11.  Strákur (Dr. Ingibjörg).  Stelpa (Harpa).

24.11.  Stelpa kl. 14 (Helga Rún).

25. 11  Stelpa (Sigrún, vantar tíma).  Stelpa kl. 08:00 (Guðrún Guðjóns).

27.11.  Stelpa kl. 12:00 (Sóla).  Stelpa kl. 10:15  (Ásta).  Strákur kl. 17:15 (Jófríður).

28.11.  Strákur kl. 03:30 (Agga).  Stelpa (Rannveig).

29.11  Strákur kl. 11:00 (Ingibjörg Eiríks).  Strákur (Ingunn Alda, vantar tíma)

30.11.  Strákur (pabbi)

1.12.  Strákur (Hjörtur).

2.12.  Stelpa fyrir hádegi (Júlíana).  Stelpa (Sólveig, vantar tíma).

3.12.  Strákur kl. 06:15 (Bjössi).

Það er ekki of seint að bæta við listann hér fyrir neðan því að ég er nú ekkert að fara að eiga barnið fyrr en í fyrsta lagi í næsta mánuði (ef guð lofar). Þeir sem eiga eftir að setja inn tímann endilega reddið því og þeir sem vilja vera með í þessum gífurlega spennandi leik, takið þátt með því að setja inn fæðingardag, tíma og kyn...á barninu, ekki ykkur sjálfum (ahahahhaa).

Gjössovel:


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.10.2009 23:16:32 / solrun

Afmælispistillinn

Ég átti afmæli í gær, ég átti afmæli í gær..en ég er södd södd í dahaaag...ég gæti alveg gubbað. Best ég skrái niður helstu atburði helgarinnar svo ég gleymi þeim nú ekki.

Fékk að sofa alveg til rúmlega níu í gær en þá komu Diddú og Höddú (Sigrún og Hjörtur) upp í rúm með heila þrjá pakka handa gömlu. Í þeim voru bókin The Girl Who Kicked the Hornet's Nest eftir Stieg Larson, gullkross og skíðalúffur. Sló 100% í gegn! Svo átti ég annan pakka til góða frá Lúllu systur og fjölskyldu og í honum voru alveg hreint bráðsniðugar bækur. Sigrún Björk fékk svo laugardagsnammið sitt langþráða, eða heil tvö Pez:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/afmlisolu050.jpg

Eftir morgunmat fannst mér tilvalið að efna loforð mitt um aðra óléttumynd, svona til þess að sýna hvað bumban hefur stækkað mikið á stuttum tíma. Hér er afraksturinn:
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/afmlisolu049.jpg
32 vikur og tveir dagar og....þetta er líklega stelpa!

Ég fór með Sigrúnu í dans í Laugum og tók þokkalegustu brennslu á hjóli og cross-trainer á meðan. Ég hitti reyndar stóran hóp karlkyns Laugaskokkara sem var að teygja uppi og þótti mér mjög gaman að sjá þá alla nema karlpungana Pétur Ísleifs og Kristin, sem áttu ekki til orð yfir hvað ég var með stóra bumbu og gátu sko bara alls ekki trúað því að ég ætti ekki að eiga fyrr en í lok nóvember! Ég sagði bara FOYF (Feast On Your Feces!) í huganum og hélt áfram að vera í stuði. Það eru nokkrir svona kallandskotar uppi í skóla en mér hefur alltaf tekist að þagga fullkomlega niður í þeim með því að spyrja þá hvað þeir séu sjálfir komnir langt á leið (allir með góða bumbu). En það virkar víst ekki á horaða hlaupatitti!

By the way, ég lenti í því í fyrsta sinn á ævinni að kreditkortinu mínu var synjað. Ég ætlaði að endurnýja árskortið mitt í Laugum og þar sem bankinn er ekki enn búinn að senda mér debetkortið mitt (þó að pin-númerið sé löngu komið) ætlaði ég að setja þessar penu 65.000 krónur á kreditkortið. Ég komst þá að því að það er til eitthvað sem heitir "heimild" á kreditkorti og hún nær víst ekki nema 116.000 kalli hjá mér þannig að þessi summa var ekki samþykkt. Sem betur fer var stelpan í afgreiðslunni góðhjörtuð og hleypti mér samt inn. Kannski af því að ég var ólétt og átti afmæli?

Þegar ég kom heim eftir Laugar fór ég í afmælisbað en það stóð stutt yfir því að dyrabjallan urraði í sífellu. Pabbi kom með svakalega flotta matreiðslubók og Gunni mágur mætti líka í heimsókn, en bara svona óvænt. Stuttu síðar heyrðist mikill lúðrablástur og söngur úti á túni og var þar komin engin önnur en Ásta ofvirka og hennar börn, marserandi í takt og syngjandi afmælissönginn þríraddað! Hún færði mér frá enskudeildinni fótsnyrtingu MEÐ lökkun (nóta bene) og frá henni sjálfri fékk ég svo alla snyrtivörulínuna frá Clinique, thank you very much! Hvernig verður þetta eiginlega þegar ég á stórafmæli? Það er náttúrulega mjög lahahahahahahahangt í það....

Eitthvað er ég farin að huga að hreiðurgerð því að mér fannst tilvalið að fara í IKEA og leita að skápum og skúffum til að setja í herbergi Sigrúnar þannig að ég gæti fljótlega farið að taka hennar föt úr skiptiborðskommóðunni og setja eitthvað á ófædda krílið þar í staðinn. Svo stendur til að setja krílið inn til hennar þegar fram líða stundir, eða þangað til við vinnum í Lottó og getum stækkað við okkur.

Hjörtur reyndist enginn lúðulaki frekar en vanalega og eldaði handa litla lúðanum sínum alveg dýrindis smálúðu í kvöldmat og eftir að Sigrún var farin í bólið lögðumst við upp í rúm með sína hvora bókina (Millennium) og lásum þar til svefninn seig á brá. Góður afmælisdagur!

But it ain't over till it's over! Ég vaknaði um nóttina við að Sigrún kom upp í til okkar, sjóðheit og hress og svo sváfum við til átta eða níu. Hún mældist mest með 39,4 í dag en var samt nokkuð hress bara. Þetta þýddi að það var ekkert farið út að leika og því fannst mér alveg eins gott að reyna að taka almennilega til heima hjá mér áður en afmælisgestirnir kæmu um kvöldið. Ég þurfti sko að fresta afmælismatnum af því að Bjössi bróðir var á Akureyri á afmælisdaginn minn. Ég fór því ekkert út í dag en dundaði við tiltekt og þrif og eftirréttagerð eins og húsmóður á besta aldri sæmir. Maturinn var svo klukkan sex og þeir sem mættu voru: Harpa, Helga, Bjössi, Erna, Erna Rós, Ólafur Geir, pabbi og Björg Steinunn. Björg hafði sko verið hjá pabba sínum um helgina en kíkti reyndar smá á mömmu sína á afmælisdaginn og gaf henni heimatilbúna bók með teikningum og texta um hvað mamma hennar væri frábær...stundum. Ótrúlega dúllulegt! Svo gáfu Harpa og Helga mér alveg fyrirmyndarfæðingarorlofsgjöf: Náttbuxur og svaðalega þykka heimasokka! Bjössi og co. klikktu svo út með ægilega flottum eyrnalokkum og ég ætla svo að leggja mig fram við að týna þeim ekki!!

Hjörtur grillaði lambalundir og tók allan pakkann á þetta. Flestir borðuðu svo mikið að þeir óskuðu þess að vera komnir með búlímiu...alla vega light útgáfuna. Fyrir eftirréttinn var svo glæsileg töfra- og leiksýning að hætti Bjargar Steinunnar, en í aðalhlutverki voru Sigrún Björk og Ólafur Geir. Hér má sjá krílin í skinku (ham):
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/afmlisolu055.jpg
Eftir töfrabrögð og brúðuleikhús bauð frúin upp á Rolomarengstertu, ávaxtasalat og eggjarjóma. Það gerði útslagið og nú er ég sprungin!

Fleiri fengu gott í gogginn um helgina, því að Kisi Jackson fékk að smakka á humar og lúðu og var alveg crazy!!
http://img.photobucket.com/albums/v676/solrun/afmlisolu052.jpg
Eat it, eat it, open up your mouth and eat it!

Ég þakka fyrir mig!

Sóla afmælisbarn:haha:

PS Enn er hægt að skella kyni, fæðingardegi og fæðingartíma í veðbankann í bloggfærslunni hér fyrir neðan. Miði er möguleiki!

» 6 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  51  Alls: 288070