Zola´s Zone

Welcome to the Zone!

18.01.2010 12:49:32 / solrun

Barneignir og brjóstaþoka

Íris enskukennari í Borgó var að eignast strák í nótt! Ef hún væri ein af Séð og Heyrt genginu hefði hún verið að eignast sólargeisla, en þetta var víst bara  venjulegt barn. Yndislegt að vísu. Auðvitað vissi ég að þetta yrði drengur af því að Eva franska var sko handviss um að Íris gengi með stelpu.  Ef Eva verður einhvern tímann atvinnulaus getur hún fengið vinnu upp á Landspítala sem sónartæki, eða alla vega kyngreiningartæki. Bara að muna að ef hún segir stelpa þá þýðir það strákur og svo öfugt. Þetta er í sjöunda sinn í röð sem hún giskar vitlaust á kyn barna samstarfskvenna sinna í Borgó. Húrra fyrir Evu og húrra fyrir Írisi!

Allt gott að frétta af mér og litlu stelpunni minni sem var strákur í huga Evu þangað til annað kom í ljós. Magakveisan er búin og mamman ekki lengur lúin. Við erum byrjaðar í mömmuleikfimi í Laugum á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum ásamt Huldu Birnu og Gabríel.  Með því að ganga í Laugar og til baka og gera nokkrar hressandi æfingar sem ég myndi aldrei nenna að gera heima hjá mér eða sjálf í ræktinni, verður þetta bara ágætis trimm.

Hásinin er ekki góð og því lét ég sjúkraþjálfarann minn kíkja á mig síðasta föstudag.  Það er stór kúla á sininni og ætlar hann að athuga hvort Doktor Saxi vilji ekki ómskoða mig aftur og sjá hvað hægt er að gera. Góðu fréttirnar eru þær að þetta er ekki það sem er kallað krónísk hásinameiðsl en slæmu fréttirnar eru þær að það virðist sem svo að örið eftir aðgerðina "góðu" sem ég fór í um árið sé alltaf að espa upp hásinina...somehow.  Ég má samt hlaupa eitthvað og þá frekar stutt og oftar. Ég prófaði að hlaupa sex km. á laugardaginn og svo fimm á sunnudaginn og fannst það eiginlega allt of mikið álag á Hönnu hásin.  Ég held ég verði að minnsta kosti að láta dag líða á milli, ef ekki meira. Ég fer aftur til sjúkraþjálfarans á miðvikudaginn og þá veit ég kannski betur hvenær doktorinn getur kíkt á mig. Ég held alltaf í vonina um að einhver sé þarna úti sem getur læknað mig. En þá verð ég örugglega 110% hamingjusöm sem er kannski aðeins of mikið?

Helgin var mjög róleg og það eina sem við gerðum var að bjóða Ástu og fjölskyldu í mat á sunnudagskvöldið. Það gerist nú ekki oft enda búa þau alveg heila 350 metra frá okkur og það er löng ganga fyrir svona ofurlatt kyrrsetufólk...múha.

Ég var að komast að því að ég þarf að taka mér tak hvað varðar tölvunotkun. Inboxið var fullt af bráðnauðsynlegum pósti, til dæmis frá kennurum Bjargar varðandi prófin sem hún er BÚIN í þannig að mamman er ekki alveg að standa sig. Það er sífellt erfiðara að fá þennan frumburð minn til þess að setjast niður og læra fyrir próf ("ég kann þetta allt mamma") þannig að ég er fegin að þetta er að verða búið. Bara próf úr Íslam á morgun. Jább...þarf að kíkja í tölvuna a.m.k. annan hvern dag. Ég er þó búin að taka gemsann af "silent" sem er mikil framför. Þetta þýðir að ég er smátt og smátt að komast úr brjóstaþokunni og aftur inn í land hinna venjulegu, vinnandi stétta.

Over and out

Sóla þokumóða:haha:
Ingibjörg skrifaði
Svei mér þá, Sóla! Maður hefur ekki við að lesa bloggin þín, þú ert ofvirk í þessu... En þetta var jafn skemmtilegt blogg og venjulega og gaman að heyra fréttir af ykkur. Frábært að litla dúllan sé svona róleg og góð. Þú átt það skilið. Kær kveðja að norðan.
Ásta skrifaði
Takk fyrir dásamlegan mat í gær, OMG, gæsin, kolinn og bomban í eftirrétt, þetta var snilldin einasta! Vildi bara að ég gæti verið með þér í leikfiminni líka:)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 287678