Ja hérna hér! Tíminn líður svo hratt að áður en ég veit af verð ég farin að gera annál fyrir árið 2010. Reyndar er ég að því akkúrat núna, þ.e. með því að skrifa þessi orð hérna. Mér finnst margt og mikið vera búið að gerast en svo þegar langur tími líður á milli blogga er maður strax farinn að gleyma.
Eitt af því markverðasta sem gerðist í vikunni er reyndar að hún Inga amma mín á Flateyri birtist í fréttunum á RÚV og sagði: "Vér mótmælum allir!" Jæja, reyndar sagði hún: "Ég fer ekki neitt" eða eitthvað svoleiðis en það kemur á sama stað niður. Hún er sem sagt ein af 3 vistmönnum á elliheimilinu á Flateyri. Það á að fara að leggja það niður í sparnaðarskyni og koma fólki fyrir á Ísafirði, Bolungarvík eða á Þingeyri. Þetta hljómar afskaplega illa en er kannski ekki það versta í stöðunni. Mér hefur til dæmis alltaf fundist þetta húsnæði algjörlega glatað fyrir starfsemi af þessu tagi. Þar er engin lyfta þannig að amma og önnur farlama gamalmenni fara ALDREI út (herbergin eru á 2. hæð) og hennar herbergi er líklega ekki stærra en 4-5 fermetrar. Eini kosturinn við herbergið hennar ömmu er að hún sér gamla húsið sitt beint út um gluggann. Auðvitað væri best ef hægt væri að flytja vistmenn í eitthvað annað hús í þorpinu, svona til þess að það fái að vera í sínum heimabæ síðustu æviárin og að einhver stöðugildi haldist fyrir heimamenn. Ekki vildi ég þurfa að enda ævina í Ólafsvík! Hins vegar fannst mér fara mun betur um ömmu á sjúkrahúsinu á Ísafirði í sumar. Þar hitti hún fleira fólk, rambaði um langa ganga með göngugrindina sína og fór í messu og meira að segja út úr húsi! Það verður að spennandi að fylgjast með þessu máli. Kannski verður bara uppreisn á elliheimilinu og Gunnlaugur frá Hvilft stendur við stóru orðin og rotar mann og annan með stafnum sínum. Amma getur eflaust slegið nokkra kalda með göngugrindinni - eða hrætt úr fólki líftóruna með því að taka úr sér fölsku tennurnar. Þannig hræddi hún alla vega barnabörnin í gamla daga.
Aðrir úr fjölskyldunni hafa ekki komist í fréttirnar að mér vitandi. Nú eru jólin búin og gúrkan og Icesave tekið við. Sigrún og Björg kvöddu jólin með stæl og hökkuðu í sig piparkökuhúsið:

Ekki mjög frýnilegar!
Fjölskyldulífið gengur fínt. Sigrún tók smá óþekktarbombu á foreldrana eftir fæðingu Kristrúnar en svei mér þá ef það er ekki bara alveg gengið yfir...nema að hún sé í smá pásu. Hún er búin að vera eins og engill síðustu daga. Hér eru allar litlu stelpurnar að leika sér saman:

Ég upplifi ekki þriðja barnið sem íþyngjandi viðbót. Ef að Sigrún Björk væri bara eins árs væri þetta auðvitað allt annað mál. Björg Steinunn er líka svo rosalega dugleg að leika sér við Sigrúnu að maður veit ekki af þeim þegar þær eru báðar heima. Ég sé líka hvað það var skynsamlegt að eignast eitt barn í viðbót því að auðvitað fer Björg til pabba síns aðra hvora helgi og þá er Sigrún greyið hálf vængbrotin og þarf að leika sér við hundleiðinlega foreldra sína. Núna verður hún aldrei ein og ég á ekki von á öðru en að hún og Kristrún verði mestu mátar þegar fram líða stundir. Enda fá þær að vera saman í herbergi næstu árin, svona þangað til við vinnum í lottó og flytjum í stærra hús.
Mjá...síðasta laugardag fórum við í afmælisveislu til Ástu og fjölskyldu. Benedikt og Steini áttu afmæli í þetta sinn og ég hafði á orði við Ástu að maður væri farinn að hitta hennar fólk mun oftar en sitt eigið, enda var ég síðast í afmælisveislu þarna hjá Aðalsteini 17. desember sl. Hér er Sigrún Björk á leiðinni í afmælið:

Svo fín í nýju kápunni frá Óla afa.
Björg Steinunn er góð og dugleg stóra systir og fór meira að segja í bað með minnstu systur fyrir stuttu. Auðvitað varð ég að mynda þann merkilega atburð:

Björg Steinunn fer eflaust að banna mér að birta myndir af henni í baði af því að hún er á góðri leið með að verða unglingur, blessuð dúfan. Alla vega finnst mér það þegar ég horfi á allt snyrtidótið og 25-26 glös af naglalakki sem hún á!
Fyrst að Ásta fékk ekki samúðarfæðingarorlof þessa önnina ákvað ég að reyna að standa á eigin fótum og vera aktív í orlofinu. Ég ætla að vera dugleg að fara út úr húsi og heimsækja fólk. Fyrir stuttu heimsótti ég Huldu Birnu vinkonu sem eignaðist strák 18. nóvember sl. Drengurinn heitir Gabríel og er bara alveg eins og Mikael, eldri bróðir hans, sem er jafngamall Sigrúnu. Huldu finnst Kristrún líka ansi lík Sigrúnu þannig að við munum eflaust ruglast oft á nöfnum í framtíðinni. Sjáiði bara litlu krúttin:

Kristrún aðeins að reyna að vaða yfir Mikael. Takið eftir fallegu Barbapapa peysunni sem Kristrún fékk frá Sabbó mágkonu og co. í jólagjöf. Talandi um Sabbó og Krissa: Þau eiga von á tvíburum í júlí!!! Það eru allir geðveikt spenntir í fjölskyldunni. Ég hef aldrei átt neinn nákominn sem gengur með tvíbura þannig að ég er alveg að tapa mér af spenningi. Það kemur í ljós í febrúar hvers kyns tvíbbarnir eru. Ég er búin að veðja á stelpu og strák. Spennó spennó!
Núna er ég í þriðju atlögu við að klára þetta blogg (mikið að gera í orlofinu!) og er einmitt frekar andlaus núna (Desperate Housewives og fleira gott í sjónvarpinu, auk þess sem Kristrún er að rumska...erfitt líf!) þannig að ég ætla ekki að bæta miklu meira við í þetta sinn. Hugsanlega kemur andinn yfir mig mjög fljótlega akkúrat þegar ég er ekkert að gera og Kristrún Eir er steinsofandi. By the way, stelpan er farin að sofna fyrir miðnætti þannig að lífið er fullt af eintómri gleði.

Já já já...nóg af mjólk og svefni!
Elskið friðinn og strjúkið kviðinn!
Sóla sykurkar